Fyrir hverja?
Námskeiðið er tilvalið fyrir markaðsfólk, vefstjóra, fyrirtækjaeigendur, frumkvöðla og alla þá sem vilja taka sín fyrstu skref Í Google vefmælingum. Farið verður sérstaklega yfir Google Analytics 4 (GA4) og hvernig birta megi þau gögn í Google Looker Studio. Einnig verður skoðað grunnþætti sem þarf að hafa í huga þegar kemur að leitarvélabestun (SEO) og hvernig tólið Google Search Console hjálpar við að taka upplýstar SEO ákvarðanir.
Á námskeiðinu munu þátttakendur læra
Umsagnir frá þátttakendum
„Þægileg og góð nálgun á efninu. Einfaldar mikið fyrstu skrefin.“ „Komið inn á helling af nýjum hlutum sem munu nýtast.“ „Mjög skýrt og Andri mjög hjálplegur.“ „Frábær kennari sem kom efninu vel frá sér.“ „Kennarinn kom efninu vel til skila á skipulagðan hátt.“
Um kennara
Arnar Gunnarsson hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðargráðum. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í gagnadrifnum birtingum hjá Digido í 5 ár. Birkir Árnason hefur aðstoðað fjölbreyttan hóp fyrirtækja í markaðsmálum síðastliðin fimm ár með sérstaka áherslu á gagnamiðaða markaðssetningu og mælingar.
Aðrar upplýsingar
Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu. Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn. Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.