Þetta er sú spurning sem ég hef fengið oftast á þessu ári.
Og hún er smá þreytt en mjög skiljanleg. Ég meina:
Gervigreind getur skrifað greinar á nokkrum sekúndum.
Google svarar sífellt fleiri spurningum beint í leitarniðurstöðum.
Fólk notar gervigreind meira en nokkru sinni fyrr.
Fólk eyðir mikin tíma á TikTok, LinkedIn, Reddit, YouTube og í fréttabréfum.
Þannig... er þess virði að skrifa blogg árið 2026?
Svarið er já. En ekki á þann máta sem flest fyrirtæki eru að gera það í dag.
Blogg eru enn verðmæt þegar þau hjálpa fólki að skilja eitthvað betur, leysa vandamál, bera saman valkosti eða taka betri ákvörðun. Þau eru hins vegar ekki verðmæt þegar tilgangurinn er eingöngu að fylla efnisdagatal eða elta leitarorð með almennum og innihaldslausum greinum.
Sú útgáfa af bloggi er orðin þreytt. Og satt að segja má hún alveg deyja út.
Blogg eru ekki dauð. Léleg blogg eru það.
Internetið þarf ekki enn eina greinina sem heitir „10 ráð til að bæta markaðsstarfið þitt“. Grein skrifuð af gervigreind sem útskýrir einfalt efni án raunverulegra dæma, án skoðana og án skilnings á lesandanum.
Það er varla gagnlegt. Vandamálið er ekki bloggið sjálft. Vandamálið eru gæðin.
Blogg eru enn ein besta leiðin fyrir fyrirtæki til að útskýra það sem þau kunna. Þau gefa þér rými til að svara spurningum almennilega. Þau hjálpa mögulegum viðskiptavinum að skilja hvernig þú hugsar. Þau gera þér kleift að sýna sérþekkingu áður en einhver bókar fund, biður um tilboð eða kaupir þjónustu.
En í dag eru kröfurnar orðnar flóknari.
Gervigreind hefur gert meðalmennsku auðvelda í framleiðslu. Það gerir slíkt efni líka minna verðmætt.
Ef bloggið þitt er bara safn af yfirborðskenndum greinum sem eru skrifaðar til að þóknast SEO-tólum, þá er ólíklegt að það skili árangri. Ef það endurspeglar raunverulega reynslu, skýra hugsun og gagnleg ráð, þá getur það enn virkað mjög vel.
Af hverju skipta blogg enn máli?
1. Fólk leitar enn að svörum
Leitin hefur breyst, en fólk er enn að leita.
Það leitar á Google. Það leitar á YouTube. Það leitar á Reddit. Það spyr ChatGPT. Það ber saman svör á milli mismunandi miðla.
Hegðunin hefur breyst en þörfin ekki.
Fólk vill enn upplýsingar áður en það tekur ákvörðun. Gott blogg hjálpar þér að vera sýnilegur á meðan það rannsóknarferli stendur yfir.
Þetta skiptir máli vegna þess að mörg kaupferli hefjast löngu áður en einhver hefur samband við fyrirtæki.
Viðkomandi er kannski ekki tilbúinn að tala við sölufulltrúa. Hann veit jafnvel ekki nákvæmlega hvað hann þarf ennþá.
En hann hefur spurningar. Og blogg gefur þér tækifæri til að svara þeim snemma.
Til dæmis:
Hver er þjónustan?
Er hún peningana virði?
Hvað þarf ég að vita áður en ég vel þjónustuaðila?
Hverjar eru áhætturnar?
Hvernig lítur góð lausn út?
Hvaða mistök ætti ég að forðast?
Þetta eru ekki bara SEO-efni. Þetta eru sölusamtöl sem eiga sér stað áður en sölusamtalið hefst.
Þess vegna skipta blogg enn máli.
2. Blogg byggja upp traust á hátt sem auglýsingar geta ekki
Auglýsingar geta vakið athygli. Þær geta skapað vitund. Þær geta aukið umferð. Þær geta komið skilaboðum þínum fyrir framan rétta fólkið.
En auglýsingar byggja sjaldnast upp djúpt traust, einar og sér.
Blogg geta það.
Þegar einhver les gagnlega grein frá fyrirtækinu þínu fær hann tilfinningu fyrir því hvernig þú hugsar. Hann sér hvort þú skiljir vandamálið hans. Hann finnur hvort þú sért að hjálpa eða einfaldlega að reyna að selja.
Það skiptir máli.
Flestir vilja ekki láta ýta sér inn í ákvörðun. Þeir vilja hafa nægar upplýsingar til að geta tekið hana sjálfir.
Sterkt blogg getur sýnt sérþekkingu án þess að troða henni upp á fólk. Það gefur lesandanum eitthvað gagnlegt áður en það biður um eitthvað í staðinn.
Það gerir fyrirtækið þitt trúverðugra.
Þetta á sérstaklega við um fyrirtæki sem selja þjónustu, hugbúnað, ráðgjöf eða aðrar lausnir þar sem ákvörðunin krefst umhugsunar.
Því flóknari sem ákvörðunin er, því mikilvægara verður fræðsluhlutverkið.
3. Bloggið þitt er eign sem þú átt sjálfur
Samfélagsmiðlar eru gagnlegir. En þeir eru leigulóð.
Sýnileikinn getur breyst á einni nóttu. Reiknirit geta dregið úr dreifingu. Vettvangar geta ákveðið hvaða efni þeir vilja ýta undir. Áhorfendurnir þínir eru þar, en þú stjórnar ekki umhverfinu.
Vefsíðan þín er öðruvísi.
Blogg á eigin vefsíðu er eign sem þú átt sjálfur. Þú stjórnar skilaboðunum, uppsetningunni og upplifuninni.
Þú ert ekki algjörlega háður því að annar vettvangur ákveði hvort fólk sjái efnið þitt.
Það þýðir ekki að þú eigir að hunsa samfélagsmiðla. Þvert á móti.
En bloggið getur verið góður grunnur í margt. Ein góð grein getur orðið að:
LinkedIn-færslum
Fréttabréfaefni
Söluefni
Stuttum myndböndum
Vefnámskeiðum
Tölvupóstaherferðum
Færslum á samfélagsmiðlum
Bloggið er ekki alltaf lokaáfangastaðurinn. Oft er það upphafspunkturinn fyrir allt hitt.
Það gerir það verðmætara, ekki minna verðmætt.
Blogg & Gervigreind
Það getur líka hjálpað þér að verða sýnilegri í gervigreindarleit.
Gervigreind þarf heimildir. Hún sækir upplýsingar í vefsíður, greinar, skjöl, spjallþræði og sérfræðiþekkingu.
Ef fyrirtækið þitt birtir ekkert gagnlegt efni, þá er minna fyrir þessi kerfi til að finna, skilja og vísa í.
Það þýðir ekki að þú eigir að skrifa fyrir reiknirit. Það væri stór mistök.
Þú átt að skrifa fyrir fólk fyrst.
En ef efnið þitt er raunverulega gagnlegt, vel uppsett og byggt á reynslu og þekkingu, þá á það meiri möguleika á að skila árangri í leit, gervigreindartólum og öðrum uppgötvunarleiðum.
Þjónustur
Frá árangursbirtingum og samfélagsmiðlum til vefstýringar, gagna og CRM, allt undir sama hatti.
Samfélagsmiðlastýring
Markviss nálgun, skapandi efni og stöðug stýring sem skilar árangri á samfélagsmiðlum
CRM
Póstlista, sjálfvirkni og gagnadrifin tengslamyndun
Árangsbirtingar
Gagnadrifin nálgun til að hámarka árangur í fjölbreyttu miðlaumhverfi.
Gögn
Frá mælingu til aðgerða – við hjálpum þér að umbreyta markaðslegu gögnunum þínum í skýran árangur
Vefstýring
Árangursríkur vefur þarf að leiða notandann áfram, svara spurningum og hvetja til aðgerða. Við hjálpum þér að byggja vef sem skilar tilgangi og bjóðum margvíslega þjónustu í þeim efnum.

